G
óðan og blessaðan daginn kæru félagar það er skátafílingur í mér í dag enda allt að grænka, grænt og skátalegt hehe.Ég hef ákveðip að blogga SOLDIÐ NÚNA VERIÐ VIÐBÚIN því AÐ ÞETTA verði langur pistill... ef ég næ að koma öllu út! Ó hvar á ég að byrja? ég er ekki dáin Ingólfur, þá er það komið á hreint
en það má samt rökræða hvort ég hafi verið í dá
Ég er búin að veltast í vöngum yfir skólamálum voðalega getur maður endalaust verið að spegúlera í hlutunum en svo ekki gert neitt í málunum... allavega ég er sátt við að stoppa hér í skólamálunum. Góð ákvörðun, ég hef sótt mér mikla reynslu í skólanum en ég bara ætla ekki að gera lokaverkefnið. Gott mál ég er að fara að eignast mitt þriðja barn og legg ekki á bumbubúann stressið sem fylgir svona lokaverkefni.
Bumbubúinn er farinn að sprikla svo maður verði var við. Frábært tilfinning
" /> Við fórum í sónar og ég ákvað að fá ekki að vita hvort kynið væri um að ræða. Þetta verður annað hvort sagði konan og ég brosti og sagði þetta á að koma á óvart! Hvaða vit er í því að fá að vita allt þá kemur manni ekkert á óvart og lífið flest út og verður ósannfærandi. Allavega ég er ánægð með að hafa ekki fengið að vita kynið í þetta sinn.
Íslenskukennslan gengur vel, yngri hópurinn er mun duglegri að mæta en sá eldri humm hvernig ætli standi á því? Ég hef mínar kenningar og eflaust þið hin líka.
Nú er kolonihelgi hjá Mána og er hann búinn að vera ótrúlega spenntur alla vikuna, var að spá í að byrja að pakka á mánudag en við náðum nú að tala hann til með það. Ég er viss um að hann á eftir að skemmta sér konunglega en hann verður vonandi líka feginn að koma heim aftur.
Hér er búið að vera frábært vorveður, gróðurinn hefur tekið mikinn kipp, þess vegna hef ég skipt um útlit á síðunni vera í stíl við veðrið þið skiljið.
En svona í stuttu máli þá er lífið bara gott, og maður þarf ekki að vera að eltast við hitt og þetta til að lifa lífinu, lífið er til að njóta þess fyrst og fremst.
Knús á línuna
Stefanía